ágúst 14 !!
ATHUGIÐ!
Kæru athugar. >>>>>>> MIXTAPE:LAZYCOMET:COM
Mixtúrur eru komnar í nýjan nú-rave búning (með dass af ggyk stíl) SJÁ HÉR!!. ZOMG. Hjiiitt og þjetta. Nú er hægt að dásama sig í neon litum og hlýða á óminn bitra. Nú ætla ég hins vegar að rjúfa skrif þessi og fá mér bjór. Góðar stundir.
júlí 30 !!
FLJÚGÐU NEANDERTHAL !
FUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUU
UUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUU
UUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUU
UUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUU
UUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUU
UUUUUUUUU
**
Lower Dens. Fallegt frá Baltimore. Ég get (um það bil) ekki hætt að hlusta á 'I get nervous'. 'Twin-Hand Movement' heitir platan. Hún frrrábær.

Lower Dens - I Get Nervous [mp3]
Lower Dens - Hospice Gates [mp3]
**
En þetta var hugsanlega of mikill dáner fyrir föstudag. Hér eru því tvö nýleg lög sem eiga það sameiginlegt að komast ekki úr heilabúinu mínu. Cut Copy komnir í gamalkunnan popp-gír og svo Primary 1 ásamt Ninu Persson úr The Cardigans. Næs.
Cut Copy - Where I'm Going [mp3]
Primary 1 - The Blues (ft Nina Persson) [mp3]
**
Puro Instinct eru tvær snotrar systur frá Los Angeles sem ég hef dolfallið fyrir. Draumkennt og letilegt popp sem biður um að vera spilað aftur og aftur. Þær kölluðu sig áður Pearl Harbor og gáfu út undir því nafni þrjár frábæra EP plötur á síðasta ári. Nýverið kom út EP'inn Puro Instinct sem er reyndar að mestu leyti eldra efni undir nýju nafni. Ég læt tvö eldri lög af 'Something About the Chaparrals' fylgja. Tjéek.

Puro Instinct - California Shakedown [mp3]
Pearl Harbor - Sunburn [mp3]
Pearl Harbor - Luv Goon [mp3]
**
Frá Los Angeles kemur einnig hljómsveit sem ber hið (yl)hýra og volduga nafn Kisses. Eh. En já, þetta er svona einsog Whitest Boy Alive og Jens Lekman saman í trópíkal / balearic syntha-pop eftirpartíi. Eða ekki. En alveg helvíti næs stöff. Tekið af plötunni The Heart of the nightlife. Þau eru einnig voðalega sæt og saklaus einsog meðfylgjandi mynd hér að neðan ber með sér.

Kisses - People Can Do The Most Amazing Things [mp3]
Kisses - Kisses [mp3]
**
FUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUU
UUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUU
UUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUU
UUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUU
UUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUUU
UUUUUUUUU
**
Frankie Rose And The Outs. Frankie Rose er ótrúleg, öll bönd sem hún kemur nálægt verða að gulli - Vivian Girls, Dum Dum Girls (fyrrverandi trommari, en samt!), Crystal Stilts og Grass Widow. Fjúff. Þó svo að hún hafi aðalega verið bakvið trommusettið er hún alveg úrvals lagahöfundur einsog hin frábæra plata, Frankie Rose and the Outs, sannar rækilega. Svo er hún líka hawt-pants. Ansi næs!

Frankie Rose And The Outs - Little Brown Haired Girls [mp3]
Frankie Rose And The Outs - Candy [mp3]
Frankie Rose And The Outs - You Can Make Me Feel Bad [mp3]
**
Grass Widow. Woop Woop! Ég hef beðið eftir þessari plötu í ofvæni. Eftir frábæra frumraun þeirra San Francisco stúlkna á síðasta ári kræktu Kill Rock Star í þær og munu í ágúst gefa út sóphomore gleðina Past Time. Kannski ekki jafn hrátt og áður fyrr en vissulega jafn einfalt, áreynslulaust og safaríkt!

Grass Widow - Give Me Shapes [mp3]
Grass Widow - 11 of Diamonds [mp3]
**
Yfir og út.
júlí 26 !!
MISGUIDED GHOST !
ÖÖö. Of mikil tónlist, of langur tími. Of mikil bólga í ennisholum. Of mikil helgar-gleymska. Nóg um það. En smá uppfærsla með mikilvægri og nýlegri tónlist. Part 2 seinna í vikunni.
Karaocake. Mjög skemmtilegt tríó frá París. indí/raf/popp með frönskum naumhyggjubrag. Minnir mig á köflum á 70's minimal syntha-poppið. Ansi næs. Gáfu nýverið út plötuna Rows & Stiches sem er búin að eiga hug minn og eyru undanfarna daga. Tjé3ekk.

Karaocake - It Doesn't Take a Whole Week [mp3]
Karaocake - Medication [mp3]
**
Sunglasses. Brrrakandi ferskt band frá Savannah sem mun án efa sogast inn í hypemaskínuna á þessu ári. Poppsýra einsog hún gerist best. Launsonur Animal Collective og MGMT. Eða sennilega ekki. En þessi lög eru tekin af samnefndri EP plötu sem kom nýverið út Guuudsjiit.

Sunglasses - Referee [mp3]
Sunglasses - Stand Fast [mp3]
**
Soft Healer. Ljúft og draumkennt popp frá Austin. Tekið af 7-tommunni Gentle One. Veit ekki mikið um þennan dúett, en það skiptir ekki öllu, þetta er næs og rúllar oofur-vel í gegn.

Soft Healer - Movie Light [mp3]
**
Ljúfsár og viðkvæmur Perfume Genius. Platan Learning hefur verið að fá dúndurdóma á interwebsinu og ekki að ástæðulausu. Hér eru tvö mjög fíin.

Perfume Genius - Learning [mp3]
Perfume Genius - Mr. Peterson [mp3]
**
Melódískt psych-pop/hip-hop wit' bleeps n' beeps og fínum falsettum hér og þar. 21 árs gutti og eiginlega ein af betri plötum ársins so far. Anticon klikkar ei.

Baths - Hall [mp3]
Baths - You're My Excuse To Travel [mp3]
**
Og að lokum. Blackbird Blackbird. Smoooov elektró. Sumarlegt og flæðir óaðfinnanlega í gegn. Fínustu bakgrunnstónar fyrir biturt tölvu-vinnandi-fólk á sumardögum.
Blackbird Blackbird - Hawaii [mp3]
Blackbird Blackbird - So Sorry Girl [mp3]
júlí 08 !!
Innundir skinni.
Þetta blöög-sumar-hlé tekur brátt á enda. En ég má til með að pósta þessu fína og nýja vídeói sem Ásdís Sif Gunnarsdóttir gerði fyrir Ólöfu Arnalds. Lagið er tekið af nýútkominni og samnefndri 7" og lofar rosalega góðu!
júní 15 !!
OG ÞÓ, ÞAÐ GETUR VERIÐ.
HM!! OFGNÆGÐ AF FÓTBOLTA!! HÚRRA!! Og ég tem mér menningarlegt umburðarlyndi gangvart þessum helvítis vuvuzela lúðrum *curses*. ¡Viva Argentina! Tók líka út smá sumarfrí til að slaka á og búa til ítaló-diskó tóna. Og forrita og bardúsast (þið vitið, bar-dúsast ha-ha) í eitthverjum pet-prójektum. Eða búa mig andlega undir 27 ára afmælið. Þá er maður offisjíalli orðinn gamall og vitur. Gamli gaurinn skv. únglíngúnúm. Það verður geeeegt!

**
Smá tónlist. Phantogram er ammrískur dúett. Elektró-pop-ish nýbylgju mellódramatík. Afar næs! Tekið af plötunni Eyelid Movies sem kom út fyrr á árinu. Tjékk.

Phantogram - You Are The Ocean [mp3]
Phantogram - Mouthful Of Diamonds [mp3]
**
Yfir og út!
júní 04 !!
MAYBE, BABY.
Shiii. Hiti. Fússball. Sviti. Kvennaljómi. Föstudagur.
**
Ohhyeah! Ég er búinn að bíða eftir þessari EP plötu í ofvæni, Vision Tunnels. Alla leið frá Ohio. Ég er einmitt búinn að lofa heimsækja stórvini mína, Ben og Jessicu, þangað (þegar góðu tímarnir rúlla). En nóg um þau. Brothertiger. (g)lo-fi og ávanabindandi syntha-popp með awesome eighties-fnyk. SUMAR.

Brothertiger - Summer House [mp3]
Brothertiger - Lovers [mp3]
**
The Drums. Fjölmörgum sjö-tommum og ep'um seinna gefa The Drums út sína fyrstu plötu. Næstkomandi mánudag nánar tiltekið. Sá þá ekki á airwaves en skildist að það hefði verið frekar mikið meh. En það er helvíti gott SUMAR í þessu. Krókar og kimar.
The Drums - Let's Go Surfing [mp3]
The Drums - Book Of Stories [mp3]
júní 01 !!
TÆKNI OG VÍSINDI.
Heii!
**
Fyrst. Dúóið Eternal Summers færa okkur fínustu sumartóna. Letilegt / strandarlegt. Samnefnd EP plata kom held ég útí fyrra en tilvalið að láta þetta rúlla núna.

Eternal Summers - Able To [mp3]
Eternal Summers - Fall Straight Back [mp3]
**
Tap Tap. Ég veit ekki hvernig þessi plata fór framhjá mér í fyrra. On My Way. Sennilega vegna ofsahraða tækni-hraðbrautarinnar og athyglisbrestsins sem fylgir þeim hraða. Tap Tap er sóló-verkefni Thomas Sanders (sem frontar hina stórgóðu Reading sveit Pete and the Pirates). Frumraun Tap Tap, Lanzafame, var án nokkurs vafa ein allra besta plata ársins 2006. En nóg um það. On My Way er kannski ekki jafn lífræn og fyrra stöff en alveg stútfull af fínustu pop-gullmolum.

Tap Tap - Star Crossed Idiots [mp3]
Tap Tap - Half Moon Street [mp3]
**
Með því skemmtilegra sem ég hef heyrt að undanförnu er nýleg (og samnefnd) plata Guidance Counselor frá Portland. Hrá en fín syntha-rokk keyrsla. Minnir mig kannski eilítið á Future Islands eða Gang Gang Dance. Helvíti hressandi stöff.

Guidance Counselor - I Don't Wanna Think [mp3]
Guidance Counselor - All God's Children Can Dance [mp3]
**
Að lokum ansi awesome stöff úr ólíkum áttum:
Connan Mockasin - Its Choade My Dear [mp3]
The Samps - FXNC [mp3]
Arcade Fire - The Suburbs [mp3]
Teen Inc. - Friends of the Night [mp3]
Indian Jewlery - Oceans [mp3]
Taken by Trees + Panda Bear - Anna (CFCF remix) [mp3]
Midnight Juggernauts - This New Technology [mp3]
maí 21 !!
RÓLEG DIAMONTINA!
Uppáhalds spam bot'inn minn, hún diamontina, var ótrúlega ánægð með síðustu færsluna. Hún lét eiginlega gleðina hlaupa með sig í gönur því hún kommentaði 194 sinni. Það er met á þessari síðu. Frekar ánægjulegur árangur. Til hamingju Diamontina!
**
Evrybudy'z tawkin 'boutem. Brúkklyn dúóið Sleigh Bells og plötuna þeirra, Treats. Believe the Hype, þetta er geeegt stöff. Hann úr hardcore pönk bandi og hún kemur úr eitthverju girl-band nylon-esque failure'i. Þetta er ótrúlega ferskt og skemmtilegt. Distortion og svo brjálæðilega grípandi húkkar. Volume'ið í 11 !

Sleigh Bells - Rill Rill [mp3]
Sleigh Bells - Kids [mp3]
**
Svo mæli ég með að þið tjékkið á nýjustu gogoyoko uppfærslu sem er frekar næs.
maí 15 !!
NAGANDI!
Nova Leigh með Born Ruffians er búið að naga mig (fyrir utan hvað það það er gott). Mig kannaðist svo þig það.. Ég er frekar mikill beach boys og brian wilson fanatic.. og viðlagið er (næstum) NÁKVÆMLEGA einsog viðlagið í 'this whole world'. Nema ég sé að verða klikkaður (líklegt). En born ruffians er snilld. Great minds think alike I guess...
maí 11 !!
I WAS LOST THEN AND I AM LOST NOW.
DJÆF TÖRKÍ! Ég er búinn að fá nóg af þessum facepalm mómentum mínum. Sumarheitið mitt, ekki meir facepalm, meira settlegt.
**
Eilítil pop-sækadelía. Ótrúlega fínt band frá Perth. Tame Impala. í þessum mánuði mun Modular svo gefa út hina stórgóðu breiðskífu Innerspeaker. Ansi næs stöff.
Tame Impala - It Is Not Meant To Be [mp3]
Tame Impala - Expectations [mp3]
**
Eitt það skemmtilegasta sem ég hef hlustað á að undanförnu er Wild Nothing. Verður mjög spennandi að heyra deibjút plötuna, 'Gemini', sem mun koma út undir lok maí.

Wild Nothing - Chinatown [mp3]
Wild Nothing - Summer Holiday [mp3]
**
DOM. Ekki Document Object Model (höhö) heldur funheitt band frá Massachusetts sem hefur buzzað all hressilega í blogg-stratosphere-inu. Bandið sendi nýverið frá sér EP'inn Sun Bronzed Greek Gods sem ótrúlega sumarlegur og hressandi. Surfarar á hressandi eiturlyfjatrippi. Ógslega fínt, OK?

Dom - Jesus [mp3]
Dom - Living in America [mp3]
**
Kanadíska rokkbandið BORN RUFFIANS hefur lengi verið í uppáhaldi. Bráðum kemur út þeirra önnur stóra plata 'Say It'. Hér er snilldar forsmekkur sem er í takt við veðrið sem er úti núna. Shiii.
Born Ruffians - Nova Leigh [mp3]
Born Ruffians - Blood The Sun And Water [mp3]
**
Að endingu hitt og þetta, nýlegt awsmsht af interspace'inu. Nýtt frá The Concretes, Interpol, Candy Claws og Ratatat.
Ratatat - Party with Children [mp3]
Candy Claws - Sunbeam Show [mp3]
Interpol - Lights [mp3]
The Concretes - Good Evening [mp3]
apríl 13 !!
I WOULD DO JUST FINE WITHOUT TODAY.
Úffa. Það er þriðjudagur og ég er enn með djammviskubit. Gah. Nóg um föstudag.
Fyrst. Nokkur lög sem ég hef hlustað ótæpilega mikið á að undanförnu. Þau eru um það bil öll gull. Hlustaðu!
Air - So Light Is Her Footfall (Breakbot Remix) [mp3]
Wye Oak - I hope you die [mp3]
Go - Outside [mp3]
Delorean - Stay close [mp3]
HEALTH - Before Tigers (CFCF Remix) [mp3]
Jai Paul - BTSTU [mp3]
**
!! Ariel Pink !!. Ooohyeahs! Ariel Pink's Haunted Graffiti og ný plata væntanleg. Before Today. Fæ ekki nóg af 'Round and Round'.

Ariel Pink's Haunted Graffiti - Round and Round [mp3]
**
TWIN SISTER. Þetta New York band er búið að vera í gríðarlegu uppáhaldi undanfarnar vikur. Þessi lögu eru tekin af Color your life sem er hægt að nálgast fríkeypis HÉR!!. Þetta er uuunaðslegt. Ávanabindandi. !!!.

Twin Sister - All Around and Away We Go [mp3]
Twin Sister - Lady Daydream [mp3]
**
Beach Fossils er hugarfóstur Dustin Payseur. Kæruleysislegt og grípandi rokk frá Brooklyn. Lögin eru tekin af samnefndri plötu sem er heeelvíti góð. Beach Fossils.. mér verður alltaf hugsað til meistara Bob Fossil (sjá 1:05).

Beach Fossils - Daydream [mp3]
Beach Fossils - Vacation [mp3]
apríl 07 !!
TEETERING ON THE EDGE.
Ó fótbolti. Ég er á lífi. Ég tók bara smá pásu til að syrgja Man. Utd. Spikfeit uppfærsla væntanleg.
mars 19 !!
DANZ
Whuat? sjá! Enn ein færslan. Og rís fræðgarsól! Stíg upp! Sá merki atburður átti sér stað á föstudaginn að ykkar heittelskaði (ehh) birtist í sjónvarpinu. Eða að hluta til. Nánar tiltekið efri helmingur andlits ( andlits / andlist ). Ég er að sjálfsögðu búinn að dokúmentera þetta allt saman fyrir ykkur hér að neðan. P.S. Hausinn minn er ekkert svona rosalega lítill, þetta er skjárinn sem er svo stór, skiljiði.

**
Fyrst. Air France og Peaches í Reykjavík um helgina. Peaches! Ha! Og ósvikin balearic / trópíkal elelektró gleði frá Gautaborg! Ójá! KAUPAA MIÐAA!
**
Caribou. Nýja Caribou platan er frábær. Snaith er náttúrulega facking snillingur. Og þegar þú ert með PhD í stærðfræði geturu ekki verið annað en á mörkunum. Sem er stórgott. Efnilegur plötu-ársins kandídat.

Caribou - Kaili [mp3]
Caribou - Sun [mp3]
**
Plastic Beach frá Gorillaz er verulega svöl. Kom mér ótrúlega mikið á óvart. Empire Ants lagið er frábært - og sniilldar innkoma Little Dragon í 2:10. Tjéeek! Og Stylo með því betra sem ég hef heyrt á árinu. Og Mos Def... shii!
Gorillaz - Empire Ants (featuring Little Dragon) [mp3]
Gorillaz - Stylo (featuring Bobby Womack and Mos Def) [mp3]
**
Here We Go Magic munu í júní-mánuði gefa úr plötuna Pigeons sem lofar ansi góðu. Smá forsmekkur.

Here We Go Magic - Collector [mp3]
Here We Go Magic - F.F.A.P. [mp3]
**
Jesse úr Professor Murder og Eric úr Don Caballero eru Tanlines. Gáfu nýverið frá sér hinn ágæta sala / trópíkal / dansipopp EP Settings. Heyr!

Tanlines - Three Trees [mp3]
**
Kthxbai!
mars 01 !!
SKRÍTIN SKRÚFA.
Hi thar! Það jafnast fátt á við búkkmark- og tölvutilltekt þegar maður er að skríða upp upp úr kvef-óbjóð. Og Twin Peaks í sjónvarpinu. Fun times. Og kærkomið músík öpdeit.

**
Fyrst! Dúnmjúk sniiiiild frá millionyoung sem er mitt nýjasta uppáhald. Lögin eru tekin af ep'unum Sundreamm og So Be True sem komu út fyrr á árinu. 'Tis iz naaais!
Millionyoung - Mien [mp3]
Millionyoung - Hammock [mp3]
**
Úffa. The Radio Dept. og platan Clinging to a Scheme. Ég var með gríðarlegar væntingar eftir að hafa heyrt fyrsta singul plötunnar, 'David', en það lag var én efa með betri lögum ársins 2009. En shiii, ég er algjörlega dolfallinn. Þetta er sennilega mikilvægasta útgáfa Labrador frá upphafi. Algjör fackin' gullklumpur!

The Radio Dept. - Heavens on Fire [mp3]
The Radio Dept. - Never Follow Suit [mp3]
**
Oooog klingjandi gítarar og hryggbrotnir unglingar frá Sheffield. Ég hef spilað þessa plötu ótæpilega mikið að undanförnu. Frekar sakleysilegt en óumflýjanleg gredda kraumar þarna undir niðri. Húrra fyrir indí poppinu!
Standard Fare - Love Just Doesn't Stop [mp3]
Standard Fare - Fifteen [mp3]
**
Splunkunýtt frá Sub Pop. Happy Birthday og lofar helvíti góðu. Kyle Thomas (a.k.a. King Tuff sem gaf út hina mögnuðu 'was dead' plötu uuu 2008) fer fyrir þessu dagfarsprúða tríói. Deibjút platan þeirra kemur út um miðjan mars og svíkur ei!
Happy Birthday - Girls FM [mp3]
Happy Birthday - Subliminal Message [mp3]
**
Ég er enn að detta niður á snilldartóna sem skriðu framhjá mér í fyrra. Cold Cave heitir þetta band. Nú-wave synthapop frá Philadelfíu. Heyrði reyndar að þau væri hætt.. sem væri miður ef það reynist rétt. Þau kunna einnig að pósa all svakalega einsog myndin hér að neðan sýnir bersýnilega. Hvílíkir töffarar atarna! Allavega. Tjéek!

Cold Cave - Life Magazine [mp3]
Cold Cave - Love Comes Close [mp3]
**
Og loks. Javelin. Ofur næs og nýlegt. Tekið af plötunni No Más.
Gah. Þreyta. Nóg í bili. Snilldar tóndar frá P.J. Valentine og Stafrænum Hákon bíða morguns (eða hins)!







